3. Þróun hugmynda að lausn á áskorun/vandamáli í nærsamfélagi
Kennslustundir | 4-8 |
Námsgreinar | Náttúru- og samfélagsgreinar, listir, tungumál, saga og stærðfræði |
Viðfangsefni | Vinnustofa og hópavinna, samskipti við hagsmunaaðila og þróun valinna verkefnahugmynda |
Lýsing á námsþætti
Markmið þessa námsþáttar er að þróa raunhæfa lausn á skilgreindri áskorun/vandamáli í nærsamfélagi. Það felur í sér skipulagningu á hugmyndasmiðju þar sem nemendur læra að hlusta á og leggja mat á hugmyndir samnemenda, skipuleggja atkvæðagreiðslu á milli framkominna verkefna/hugmynda og þróa síðan saman í hópum hugmynd að tiltekinni lausn. Nemendur munu einnig fá innsýn í ákvörðunartökuferli innan sveitarfélags (sjá nánar í námsþætti 4). Þetta ferli er undirbúningur fyrir það að kynna valdar hugmyndir að lausnum fyrir hagsmunaaðilum og kjörnum fulltrúum í nærsamfélagi (fjórði námsþáttur).
Lýsingar á hæfniviðmiðum námsþáttar
þátttakendur skulu hafa öðlast þekkingu á:
- ólíkum áskorunum/vandamálum í nærsamfélaginu sem þeir búa í;
- aðferðum við að þróa lausnir við þeim áskorunum/vandamálum;
- lýðræði í nærsamfélagi og þátttöku almennings í ákvarðanatöku;
- einstaklings- og hópavinnu við mótun og þróun hugmynda að lausn á áskorun/vandamáli.
þátttakendur munu öðlast færni í:
- að beita gagnrýninni hugsun við rýni á upplýsingum og gögnum og færa rök fyrir skoðunum sínum;
- virkri hlustun og uppbyggjandi endurgjöf til samnemenda;
- að vinna saman í hópi;
- að velja og beita upplýsingatækni og margmiðlunaraðferðum við gagnaöflun og kynningu hugmynda;
- að beita ólíkum aðferðum/leiðum við að útfæra lausn á áskorun/vandamáli.
hæfni þátttakenda til að beita þekkingu sinni og færni til að:
- ræða og rökstyðja þær tillögur sem þeir leggja fram;
- vinna í teymi að því að þróa hugmyndir/verkefni sem miða að því að leysa samfélagsmál eða (flókna) áskorun;
- notamismunandi upplýsingatækni og margmiðlunartækni við gagnaöflun og framsetningu/kynningu hugmynda.