4. ENGAGE Undirbúningur og kynning á hugmynd að lausn fyrir hagsmunaaðilum í nærsamfélagi
Kennslustundir | 3-6 |
Námsgreinar | Náttúru- og samfélagsfræð, listir, tungumál, saga og stærðfræði |
Viðfangsefni | Undirbúa kynningar og kynna hugmyndir að lausnum fyrir hagsmuna- og ákvörðunartökuaðilum í samfélagi |
Lýsing á námsþætti
Markmið þessa námsþáttar er að auka þekkingu og skilning þátttakenda á mikilvægi þess að hafa rödd/láta í ljósi skoðanir sínar í nærsamfélagi og hvernig ákvarðanataka í lýðræðissamfélagi á að virka. Þátttakendur öðlast einnig færni í að koma hugmyndum sínum að lausnum á áskorunum á framfæri við hagsmunaaðila og kjörna fulltrúa í gegnum kynningar eða annað form. Þetta getur m.a. falið í sér ungmennaþing með þátttöku hagsmunaaðila og kjörinna fulltrúa.
Lýsingar á hæfniviðmiðum námsþáttar
þátttakendur skulu hafa öðlast þekkingu á:
- hlutverki ólíkra hagsmunaðila, stofnana og annarra sem fara með ákvörðunarvald í nærsamfélagi, mikilvægi aðkomu ólíkra þátttakenda í samfélagi í stefnumörkun og þátttöku almennings í ákvörðunartöku;
- ólíkum aðferðum við kynningu á hugmynd að lausn, með eða án notkunar upplýsingatækni;
- fyrirkomulagi lýðræðis og ákvarðanatöku og leiðir fyrir almenning til að taka þátt í ákvörðunum í nærsamfélagi.
þátttakendur munu öðlast færni í:
- að vinna í hópum og byggja upp og þróa styrkleika sína í samskiptum og samvinnu við aðra;
- að koma fram og vera talsmaður viðfangsefnis (hugmynda) fyrir hagsmunaaðilum og kjörnum fulltrúum;
- að beita ólíkum leiðum til að tryggja að rödd þeirra heyrist í samfélagi/hafa áhrif á samfélagsumræðu/ákvarðanatöku.
hæfni þátttakenda til að beita þekkingu sinni og færni til að:
- eiga gagnvirk og árangursrík samskipti og rökstyðja eigin skoðanir;
- kynna og færa rök fyrir hugmyndum og nota til þess eigin styrkleika;
- nota ólíka upplýsingartækni og margmiðlunaraðferðir til að kynna hugmyndir;
- taka þátt í ákvarðanatökuferli innan nærsamfélags.